Skref í átt að betri líðan

Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur veitir faglega og persónulega þjónustu í öruggu og styðjandi umhverfi. Markmiðið er að vinna saman að því að skilja áskoranir þínar, efla bjargráð og finna leiðir sem stuðla að betri líðan til lengri tíma.

Um Ingu Rún

Inga Rún Björnsdóttir er löggiltur sálfræðingur með fjölbreytta reynslu í klínísku starfi og áratuga reynslu af meðferð og ráðgjöf. Hún hefur starfað innan taugasálfræði og klínískrar sálfræði og sinnir meðal annars meðferð við svefnvanda, kvíða, streitu, depurð, lágu sjálfsmati og öðrum tilfinningavanda. Hún leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, gagnreyndar aðferðir og hlýja, einstaklingsmiðaða nálgun. Hún styðst við aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og ACT (Acceptance and Commitment Therapy) í sínum störfum.